27.4.2007 | 00:12
Fordómalaus framtíð
Í málefnum útlendinga er afstaðan mín mjög skýr, en hún er sú að virða beri alla þá er hingað til lands koma óviðkomandi trúarbrögðum eða litarhætti og gæta skal þess að þetta fólk njóti allra almennra réttinda sem og aðrir borgarar þessa lands. Gæta þarf þess þó að þar sem við erum lítil þjóð og höfum ekki sama mátt sem stærri þjóðir hafa til að taka á móti fólki sem er að flýja fátækt og stríðshörmungar þjóða sinna, er rétt að við setjum okkur reglur um hvernig taka skuli á móti fólkinu og í hvaða mæli. Það er hvorki flóttamönnum eða íslendingum til góðs að taka á móti svo miklum fjölda fólks að velferðakerfi landsins láti undan síga. Íslendingar eiga frekar að beita sér af alefli á alþjóðavettvangi að leysa deilur milli þjóða og styrkja alþjóða hjálparstofnanir svo fólk geti lifað mannsæmandi lífi í heimalöndum sínum. Ég undrast orð óábyrgra stjórnmálamanna sem ekki gera sér grein fyrir þeim vanda er þjóðir heims standa frammi fyrir í dag vegna flóttamanna og að kalla þá er vilja hlutlausar umræður um þessi mál rasista er skömm fyrir þann er lætur þau orð frá sér fara. Það er engin niðurlæging í að fólk geri grein fyrir sér þegar komið er til landsins þetta verða íslendingar að gera á ferðum sínum til annara landa.
Ég kalla eftir fordómalausri umræðu um þessi mál.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.